Vangavelturnar mínar

Pleh!!

26.05.2008 14:02:15 / Katrín

hmmm....

´Nú hef ég ákveðið mig...

nú þarf ég að finns uppl og svo byrja ég.

Nánari uppl síðar.

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.04.2008 20:54:29 / Katrín

umm

jeij!!! tækið mitt er komið!! var að kaupa mér æfingatæki svo ég komist nú í betra form. ég er búin að æfa mig tvisvar á því og þvílíka svitabestin sem kemur af mér... svitinn bara rennur og rennur. loskins breytist ég eitthvað. I like it aha aha!!

þetta sveitalíf venst alveg ótrúlega. ég sakna bæjarins ótrúlega lítið. það eina sem ég sakna er að hitta mömmu og systu. en umferðin hérna er yndisleg. djö þoli ég ekki umferðina í bænum! allt of mikil umferð í bænum og of lítil tillitssemi.

var í fríi í dag og naut þess að vera með stráknum mínum. fór út í garð í bítið og tíndi smá rusl sem hefur safnast fyrir í runnum í rokinu sem hefur verið undanfarið. þannig að núna er orðið allt annað að sjá garðinn hjá útudyrahurðinni. á eftir allan bakgarðinn en það liggur ekki jafn mikið á því. en það sem mig langar að gera í sumar fyrir framan hús er að fá mö og sand og svo hellur. ætla að ath hvort mennirnir mínir eigi kannski nóg handa mér af einhverju. vonandi... þarf líklega um 100 fm.

mágur minn kom í dag og setti hlið á pallinn minn. ekkert smá flott hjá stráknum. nú get ég opnað út á pall án þess að þurfa að hugsa um hundinn. .að er æðislegt!!!

chaooo

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.03.2008 22:05:35 / Katrín

umm

tikk takk tikk takk... tíminn líður svo hægt akkúrat í augnablikinu. ein heima. búin að skúra neðri hæðina. koma stráknum í bólið sitt. búin með restina af ísnum. en gaman. tröllin mín tvö eru ekki heima.

hvað á ég að gera? gæti litað augabrúnirnar mínar sem hafa ekki sést í 3 mánuði. eða kannski haft strákinn til fyrir morgundaginn svo ég þurfi ekki að stressast upp í fyrramálið. gæti einnig saumað gardínurnar í eldhúsið. en hérna sit ég að bulla á bloggið mitt. 

í alvöru það heyrist ekkert nema andardrátturinn í barninu mínu, suðið í tölvunni og tikkið í klukkunni frammi á gangi. það er eins og ég sé ein í heiminum með stráknum mínum, tölvunni og klukkunni. við erum á einhverri eiðieyju. ein. ég hélt að ég væri skemmtilegri félagsskapur en þetta. ein.

kannski ég geti sléttað hárið mitt fyrir morgundaginn. þá verður það auðveldara á morgun. eða ég geti gegið frá inni í þessu herbergi. reyndar voða fínt á yfirborðinu eins og er. þurfti að taka til á 15mín í öllu húsinu. frekar messí í öllum skúffum og kössum sem ég kom drasli ofaní. fyrirmyndarhúsmóðir. drasl í skápnum mínum. piff.

ég bjó til matseðil fyrir vikuna. geggjað dugleg. verslaði ósköp lítið inn fyrir vikuna því ég átti fulla skápa af einhverju. keypti það sem uppá vantaði í góðar og hollar máltíðir. muniði.... salatskálin. það verður vonandi ég eftir smá tíma. ekki meiri sykurpúði. ég er komin méð ógeð á að vera sykurpúði. langar ekki lengur að vera svona sæt. mig langar að vera flott og stinn eins og gulrót. 

mig vantar að vinna í lottó. þarf þá væntanlega að taka þátt. langar svo til að gefa kallinum gangfærann og góðan 38" jeppa svo við getum farið smá út fyrir veg, mig þyrstir í ævintýri. 

endilega ef þið eigið eitthvað adrenalín aukalega... þá megið þið sprauta mig með því!

chao   

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.03.2008 20:43:50 / Katrín

umm

ég er svooo þreytt. fyrsti dagur eftir páskafrí þar sem maður er búin að úða í sig sælgæti og gosi. ég hef breyst í sykurpúða. nú er kominn tími til að breyta sér í salatbar og það mun ég gera. verða stinn og uppfull af vítamínum og steinefnum. kannski ég skelli mér í grillið líka svo ég fái einhvern lit. 8)

ég var svo spæld í gær. ég ætlaði að kaupa fjölþjálfa á svona líka góðum díl. maðurinn minn hringir í dömuna sem við ættlum að kaupa þetta af og segir henni að við séum að leggja af stað. við verðum komin eftr klukkutíma þar sem við búum úti á landi en við ættlum að kaupa gripinn. svo þegar við erum komin í hfj þá hringir maðurinn minn aftur og þá segir daman að hún sé búin að selja tækið. mér finnst þetta svo mikill dónaskapur að ég næ ekki upp í nefið á mér. :whut:

en ég hitti mömmu mína í gær og það var æðislegt. ég hef saknað hennar svo mikið. mig vantar samt bráðum að fá að hitta hana eina og kannski systu líka. bara svona smá mæðgnamót. það væri yndislegt. :)

vinnan mín er fín.  alltaf alveg ótrúlega fljótur að líða dagurinn hjá mér sem er algjörlega frábært. svo fæ ég líka að borða í vinnuni  og það er í flestum tilfellum hollt og gott. sakna þess samt að vinna með kk. en ættli maður verði ekki að prófa að vinna einungis með konum. þetta er samt skrítið. mér finnst ég miklu varari um mig í hópi af konum... má enga styggja því þá fer allt í loft upp og ég vil það ekki. ég verð að vinna mig út úr þessu því þetta er mikill galli. ætti að vera akkúrat öfugt. :s

það er snjór hérna. en ekki í hveragerði. það er svo asnalegt. ekki nema um 20 km á milli bæjarfélaganna en samt snjór hér en ekki þar. :!:

jæja...
 chao....     :d


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.02.2008 10:50:17 / Katrín

langt síðan síðast

Ég hef ekkert skrifað hérna síðan áður en ég flutti... jæja nú hef ég búið í húsinu mínu í mánuð, og vááá en sá munur. Það er svo mikið pláss!! En húsið er ennþá hálftómt. Mig einmitt sárvantar borðstofustóla 6-8 stk. en það kemur örugglega einhvernveginn.

allavega.. ég nenni ekki að skrifa meir.

chaooo

» 6 hafa sagt sína skoðun

08.01.2008 14:32:52 / Katrín

8. janúar

 Jæja... þá er að koma að því... síðasta vikan í íbúðinni minni!!!! Á þriðjudaginn fæ ég afhent... guð hvað ég hlakka mikið til!!! breytingar í vændum.. alveg hreint massívar!!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.12.2007 11:51:11 / Katrín

21.desember 2007

niðurtalningin er hafin... vinnutörnin er að verða búin!!!

Jólin eru að koma víííí......

Afslöppun!!!! chaooo


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.12.2007 14:40:39 / Katrín

20. des

Til hamingju með ammlið Tengdapabbi!!!

Síminn minn fannst í dag!!! Strákurinn minn var búinn að fela hann fyrir mér og ég var búin að láta loka honum og allt. En fjúff... hann fannst.

Ég er að vinna til sjö á morgun og laugardaginbn :( æðisleg jól!

en allavega þá er ég búin að KaupA MÉR HÚS Í ÞORLÁKSHÖFN HAHAHAHAHAHAHAHAHAH!!!! (skiljið þetta eins og þið viljið;)

 

Chaaaooooo 


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.12.2007 16:56:25 / Katrín

19.des

HAHAHAHAHAHAHAHAHA ég er búin að kaupa mér hús í þorlákshöfn!!!

hahahahahaha

 kv. kata


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 10:41:41 / Katrín

18.des

Ég týndi símanum mínum á sunnudaginn! Allir sem þekkja mig og lesa þetta bull hérna sendið mér símanr. og nafn í e-mail.  katajona@hotmail.com (og einnig ef þið vitið að ég vil fá nr hjá sameginlegum vinum endilega sendið mér nr þeirra og nöfn með líka) takk takk!!!

Kata kjáni


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.12.2007 12:56:12 / Katrín

17. desember 2007

Ég fór í bíó í gær í fyrsta skipti í 17 mánuði. Ég fór á The golden compas og kom hún skemmtilega á óvart.

kv. Kata


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 13:56:35 / Katrín

10 dagar til jóla

úh.. mér bauðst að kaupa konfekt fyrir lítinn pening. 2 kíló það ætti að nægja mér yfir jólin.. hmm... eða kannski ekki.... nei ég læt það nægja... ætla í jólagjafaleiðangur á morgun eftir vinnu svo ættla ég að njóta þess að gera ekkert á sunnudag. bara hafa það næs með fjölskyldunni minni litlu. ef veður leifir að kíkja þá út og gefa öndunum eða eitthvað.

bleh!:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.12.2007 14:51:49 / Katrín

11 dagar til jóla!!!

Óh hvernig er þetta hægt??? Ég er alveg að missa mig hérna. Ég get ekkert sagt því það gæti orðið minn svanasöngur. En allavega þá er ein manneskja sem er alveg að fara með mig. Ég er stundum við það að öskra á hana!! Þessi mannsveskja er alveg sú allra mest pirrandi manneskja sem orðum er hægt að koma að. Ef þú flettir upp orðinu pirrandi þá er mynd af henni þar. Svo kemur hún of bryður smákökur og sötrar kaffi alveg upp í eyrun á manni. Svo finnst henni einstaklega gaman af því að espa mann upp og nýtur þess þegar maður er kominn í svo vont skap að dagurinn er algjörlega ónýtur fyrir manni! Orkusuga!! Hvað er hægt að gera... hvað get ég gert... aðferð Hómer Simpsons við að tuska Bart til er stundur rosalega freistandi. Ég fæ alveg hnút í magann. Urrrrg!!!  Og það er meira en ég nenni ekki að vera að telja þetta upp.

Jólin eru alveg að koma og ég er ekki búin að gera neitt!!

Reyni að farast ekki úr stressi!

Bless

 

 

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.12.2007 12:42:34 / Katrín

121207

það er kannski kominn tími til að uppfæra fréttirnar hérna af mér og mínum.

Við erum búin að skrifa undir og greiða fyrstu greiðsluna í húsinu okkar. Það er algjörlega komið á fast núna að við erum að flytja í Þorlákshöfn. Ég hlakka svooo mikið til að fara úr kaosinu hérna í bænum og í rólegheitin. Húsið mitt er svo stórt að það verður frekar tómlegt til að byrja með. En núna loksins er ég komin með stórt verkefni handa sjálfri mér.... það er nóg sem hægt er að breyta og bæta og garðurinn er algjörlega óskrifað blað og ég mun skrifa heila skáldsögu í hann.

Jólin nálgast óðum og ég á eftir að kaupa flestar jólagjafirnar. Ég hlakka bara nokkuð mikið til jólanna... Verð hjá systur minni þessi jólin því hana langaði svo til að halda jólin sjálf. Það er vonandi að þetta heppnist allt slveg ótrúlega vel hjá henni... en kosturinn við þetta er líka sá að Trölli fær að vera hjá okkur um jólin. Hann og Brútus geta nú skemmt sér einstaklega vel saman.

Nenni ekki að skrifa meira!!

 

chaooo


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.11.2007 12:57:48 / Katrín

29.Nóvember

Mér var gefin þessi mynd af okkur mæðginum sem tekin var í sumar. Mér finnst hún svo sæt af okkur að ég ákvað að deila henni með ykkur. þ.e. ef ég get... reyni allavega .....

 

Mæðgin

 

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Klukkan
Sirkus
Dagsetning
9. febrúar 2012